Verkstæði Vöku

 

Ef þú ert með bilaðan bíl er Vaka er með frábæra bifvélavirkja sem geta leyst úr flestum almennum vandamálum sem koma upp og hjá okkur geturðu verið viss um að fá góð og sanngjörn verð.

 

Einnig er tilvalið að láta okkur gera við athugasemdir sem þú fékkst í síðustu bílaskoðun svo þú fljúgir í gegn í næstu skoðun.

 

Eftirfarandi eru t.d algengar viðgerðir hjá okkur en við gerum við mun fleira:


  • Bremsuklossar
  • Demparar
  • Tíma og vatnsdælureimar
  • Vatnsdælur
  • Olíulekar
  • Stýrisöxlar
  • Stýrisendar
  • Legur
  • Bremsudælur
  • Spindlar
  • og fleira .....

 

Þegar Vaka vinnur fyrir þig verk getur þú verið viss um að fá sanngjörn verð. Við rukkum aldrei fyrir óunna tíma, og notum vana menn í alla vinnu sem unnin er fyrir þig. Fyrir flest öll verk geturðu fengið fast verð sem breytist eingöngu ef verkið reynist annað og meira en vitað var um í upphafi. Áður en slík vinna er framkvæmd ertu látin vita um hana svo þú getir tekið ákvörðun um hvort þú viljir það gert eða ekki.

 

Ef þú ert með bilaðan bíl, hringdu núna í síma 567 6700 og pantaðu tíma hjá okkur á verkstæðinu.  Okkar loforð er að vera ávallt sanngjarnir með öll verð svo þú verðir ekki fyrir neinum óvæntum uppákomum.

 

Ef þú ert í vandræðum með að koma bílnum til okkar getur Vaka sótt bílinn þinn með dráttarbíl á sanngjörnu verði.