VAKA Bílaförgun
Þegar bíllinn er farinn að bila og viðgerðarkostnaður er orðinn hár getur borgað sig að fara að huga að förgun. Vaka er langstærsti förgunaraðili bíla á Íslandi og tekur við allt að 300 bílum í förgun á mánuði. Þegar bílnum er fargað fær eigandi bílsins 15.000 kr frá úrvinnslusjóði.
Sækjum frítt á höfuðborgarsvæðinu
ATH. að netpöntunum er einungis svarað á virkum dögum milli kl 08 og 18. Ef sendar eru inn pantanir á lokunartíma skrifstofu verður þeim sinnt næsta virka dag.
Það er auðveldara en þú heldur að skila inn gömlu ökutæki og ef rétt er að staðið geturðu fengið 15.000 kr. þegar Vaka hefur staðfest förgun. Ef skráður eigandi eða meðeigandi kemur sjálfur með bílinn er nóg fyrir hann/hana að sýna skilríki þegar komið er með ökutækið. Við gefum svo út skilavottorð sem farið er með á næstu skoðunarstöð eða umferðarstofu en þegar því er skilað inn færðu peninginn afhentan.
Ef annar en skráður eigandi kemur með bílinn verður hann að vera með umboð frá skráðum eiganda þar sem fram kemur hver er skráður eigandi, hvaða bíl viðkomandi fær umboð fyrir, undirskrift skráðs eiganda og svo þurfa tveir einstaklingar yfir 18 ára aldri að kvitta undir sem vottar.
Ef ökutæki er óökuhæft gerum við eigendum hagstæð tilboð í flutning en þó er mikilvægt að vita í hvaða ástandi ökutækið er í, t.d. hvort vantar undir hann hjólin eða er jafnvel bara grindin eftir og hvernig aðstaða er til að komast að bílnum.ATH. eigandi verður að vera búinn að taka allt úr bílnum sem hann vill eiga.
Skilavottorð er aðeins gefið út á staðnum þar sem bíl er sóttur þegar skráður eigandi/umboðsaðili er búinn að framvísa skilríkjum.
Skilagjald:
Skráður eigandi fær greitt skilagjald þegar farið er með skilavottorðið á næstu skoðunarstöð eða umferðarstofu, skilagjaldið er 15.000 kr en ef viðkomandi skuldar t.d. bifreiðagjöld eru þau dregin frá upphæðinni. Til þess að skilagjald sé á bíl þar hann að vera nýskráður hér á landi árið 1980 eða seinna og búið að borga úrvinnslugjald allavega einu sinni. Úrvinnslugjald er greitt tvisvar á ári samhliða bifreiðargjaldi. Þeim sem undanþegnir bifreiðargjaldi ber að greiða úrvinnslugjald. Úrvinnslugjald var fyrst lagt á bifreiðar nýskráðar 1988 og nýrri árið 2003. Úrvinnslugjald fyrir bifreiðar nýskráðar 1980 til 1987 var fyrst lagt á 2005.
Þótt ekki sé skilagjald á bifreiðinni, margborgar sig að láta farga henni og ganga frá í kerfinu, ekki er nóg að fara á umferðarstofu og skrá ökutæki afskráð/týnt því bifreiðin er ennþá til og gæti verið tekin númeralaus seinna, að beiðni þess sveitafélags sem hún er staðsett í. Síðasti skráði eigandi er þá fundinn og ber hann ábyrgð á ökutækinu og þeim kostnaði sem til fellur.
Ástand ökutækis:
Það þarf að vera hægt að lesa boddynúmer/grindarnúmer af grindinni en hún má vera klest og jafnvel búið að klippa hluta af henni.
Góð ráð:
Hvort sem þú gefur einhverjum bíl eða færð gefins bíl, mundu að ganga alltaf frá eigandaskiptum því þau kosta ekki nema 2800 kr og er hægt að ganga frá þeim á næstu skoðunarstöð.
Umboðseyðublað til förgunar bifreiðar: http://www.urvinnslusjodur.is/voruflokkar/okutaeki_umbod_til_forgunar.pdf
Umboðseyðublað til afskráningar bifreiðar: http://www.urvinnslusjodur.is/voruflokkar/okutaeki_umbod_til_ad_afskra.pdf
Frekari upplýsingar eru á heimasíðu úrvinnusjóðs: http://www.urvinnslusjodur.is/voruflokkar/okutaeki.htm
Einnig er hægt að fá upplýsingar í síma:
567-6700 Vaka
570-9000 Frumherji
555-3355 Aðalskoðun
580-2000 Umferðarstofa
517-4700 Úrvinnslusjóður
567-6700 Vaka
570-9000 Frumherji
555-3355 Aðalskoðun
580-2000 Umferðarstofa
517-4700 Úrvinnslusjóður
Ef einhverjar þessara upplýsinga eru flóknar að skilja eða þér finnst eitthvað mætti betur fara, þætti okkur vænt um að fá ábendingar sendar á hjalp@vakabilar.is