-------

Næsta bifreiðauppboð á vegum Sýslumannsins á Selfossi og Sýslumannsins í Reykjavík verður haldið hér í Vöku hf að Skútuvogi 8 laugardaginn 2.júní 2012 og hefst klukkan 12:00.  Hægt verður að skoða bifreiðar þegar svæðið opnar klukkan 10. 

Uppboðsskilmálar 

Þeir skilmálar sem gilda um uppboð á vegum Sýslumannsins í Reykjavík eru almennir skilmálar fyrir uppboðssölu á lausafjármunum og fleiru sbr. auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda nr. 42/1992.

Skilmálarnir eru í meginatriðum þessir:

1.      Skorað er þrívegis á viðstadda að gera frekari boð í hlut áður en hamar  fellur.

2.      Bifreiðar eru seldar í því ástandi sem þær eru í þegar hamar fellur.

3.      Sýslumaður tekur enga ábyrgð varðandi ástand bifreiða við uppboðssölu.

4.      Sýslumaður ber enga ábyrgð á því hvort upplýsingar um tegund, gerð eða árgerð bifreiðar séu réttar.

5.      Lyklar fylgja bifreiðum sem eru merktar (L) fyrir aftan á uppboðsskrá.

6.      Uppboðshaldari ákveður hvort og hvaða boðum er tekið og minnsta mun á milli boða. Séu tveir eða fleiri með sama boð ákveður uppboðshaldari hverju boði sé tekið. 

Ø  Greiðsla söluverðs fer fram við hamarshögg sem þýðir:  bifreiðar eru staðgreiddar á staðnum.  Einungis er hægt að greiða kaupverð með reiðuféi og/eða með debetkorti. Kreditkort og ávísanir eru ekki teknar. Með öðrum orðum er enginn gjaldfrestur veittur.

Ø  Þegar bifreið er slegin kaupanda skal hann ganga rakleitt til gjaldkera til þess að greiða.

Ø   Þeir einir bjóði í sem treysta sér til að standa við boð sín. Þeir sem bjóða í þurfa að vera fjárráða, þ.e. vera orðnir 18 ára.

Ø  Kaupandi ber áhættu af hinu selda frá því að hamar fellur og skal hann taka bifreið í sína vörslu strax að loknu uppboði.

Ø  Þá skal kaupandi tryggja bifreið áður en hún er færð af uppboðsstað og greiða kr. 2.530.- í skráningargjald, að öðrum kosti verða skráningarmerki tekin af bifreiðinni. Ef um vinnuvél er að ræða greiðir kaupandi kr. 2.680.- í skráningargjald.

Ø  Annar hugsanlegur kostnaður vegna skráningar bifreiðar hjá Umferðarstofu er uppboðshaldara óviðkomandi, t.d. ef panta þarf ný skráningarmerki. Þá fylgja einkanúmer ekki bifreiðum.

Ø  Lausafé í bifreiðum eins og t.d. persónulegir munir, farsímar, talstöðvar eða annað fylgja ekki með í kaupum.

Ø  Þá fyrst er hægt að færa bifreið til skoðunar þriðjudag eftir að uppboð er haldið. 

Næsta uppboð verður haldið: 2.júní 2012

Keyptar bifreiðar skal fjarlægja af uppboðsstað strax að loknu uppboði.  Vaka hf skráir inn þær bifreiðar sem eftir verða og rukkar skv. gjaldskrá fyrir geymslu þar til bifreið er sótt.

Tilboð er á flutningi bifreiða á uppboðsdegi.  Fólksbílaflutningur kr. 9.800 og jeppaflutningur kr. 10.300.

A.T.H.  Listinn getur tekið breytingum fram að uppboði.  Upplýsingar birtar án ábyrgðar.


Eldri uppboð: Sat, Feb 3rd 2007 | Sat, Mar 10th 2007 | Sat, Apr 28th 2007 | Sat, Jun 16th 2007 | Sat, Oct 13th 2007 | Fri, Jun 13th 2008 | Sat, Sep 6th 2008 | Sat, Oct 25th 2008 | Thu, Dec 4th 2008 | Sat, Feb 7th 2009